LH og FHB standa saman að hátíðinni og verður hún með hefðbundnu sniði og síðustu ár.
Að venju verður glæsileg þriggja rétta máltíð, glæsileg dagskrá og hörku ball í lokin. Verðið helst óbreytt eða 9600 kr og er ballið innifalið í verðinu. Ef menn kjósa að mæta eingöngu á ballið þá kostar sá miði 2.500 kr. Hleypt verður inn eftir að borðhaldi lýkur.
Humarsúpa með ristuðum humarhölum og nýbökuðu brauði
Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
Logandi crême brulêe með kókosís og ávöxtum
Miðasalan er hafin í Gullhömrum og hægt er að panta borð með því að senda tölvupóst á netfangið gu********@gu********.is. Borðapantanir fara þannig fram að sá sem pantar, greiðir fyrir pantaða miða eða sendir lista með nöfnum þeirra sem greiða fyrir borð á hans nafni. Borðapöntun er staðfest með greiðslu inná reikning 301-26-14129, kt. 660304-2580 og senda skal kvittun á netfangið hér að ofan.
Við viljum hvetja alla Sprettara til að gera sér glaðan dag og fagna saman góðu gengi
hestamennskunnar á árinu.
Það er svo gaman þegar hestamenn koma saman!