Uppskeruhátíð hestamanna verður haldin á Gullhömrum í Grafarholti 10. janúar næstkomandi. Gullhamrar er einn glæsilegasti veitinga- og veislustaður á landinu í dag og ætti því enginn að láta sig vanta á þessa frábæru hátíð okkar. Dagskráin verður með sama móti og venjulega. Verðlaunaafhendingin verður á sínum stað, dýrindis þriggja rétta máltíð og að sjálfsögðu dönsum við saman langt fram eftir nóttu eins og okkur hestamönnum er einum lagið.
Viðburðinn er hægt að finna á fésbókarsíðu viðburðarins.
Hinn þjóðþekkti sjónvarpsmaður Gísli Einarsson verður veislustjóri og svo mun hljómsveitin Rokk halda uppi fjörinu en í henni eru þeir:
- Hreimur Örn – gítar og söngur
- Pálmi Sigurhjartarson – píanó og söngur
- Benedikt Brynleifsson – trommur
- Róbert Þórhallsson – bassi
- Vignir Snær – gítar og söngur
Þriggja réttar máltíðin verður með glæsilegu móti:
- Forréttur – Austurlensk sjávarréttasúpa með karrí og kókos
- Aðalréttur – Lambahryggvöðvi með kartöfluköku, steiktum skógarsveppum og lambasoðsósu
- Ábætisréttur – Suðrænn kókosdraumur með berjablöndu og crumble.
Ekki láta þig vanta á eina glæsilegustu uppskeruhátíð til þessa!
Fyrstir koma fyrstir fá!
Miðasalan fer fram á gu********@gu********.is eða í síma 517-9090
Miða og borðapantanir verða til kl. 18, þriðjudaginn 6. janúar.
Miðar verða afhentir miðvikudaginn 7. janúar í Gullhömrum.
Verð: 9600 kr.
Selt inn á dansleik frá 23.30. Verð 2.500 krónur
Gestir þurfa að senda kvittun á gu********@gu********.is og þá verður tekið frá borð á þeirra nafni.
Borðaröðun fer fram þegar miðasölu lýkur!