Uppskeruhátíð ungra Sprettara vel heppnuð

Uppskeruhátíð ungra Sprettara var haldin fimmtudagskvöldið 5. nóvember. Hátíðin fór fram í veislusal Samskipahallarinnar þar sem ungir Sprettarar höfðu sjálfir skreytt daginn áður. Dagskráin var fjölbreytt, með viðurkenningum fyrir árangur og ástundun, Kahoot-leik og veislumati að Jóns Ó. Guðmundssonar kokks.

Þakkir og breytingar í nefndum

Breytingar verða á æskulýðsnefnd Spretts þar sem Þórunn Hannesdóttir formaður og Inga Berg Gísladóttir stíga til hliðar. Þær voru kallaðar upp og fengu þakklætisvott fyrir störf sín.

Þórunn, eða Tóta, hefur verið í  nefndinni í næstum áratug, þar af sem formaður í nokkur ár,  og lagt ómælda vinnu í að gera starfið skemmtilegt, fjölbreytt og eftirminnilegt fyrir unga fólkið. Hvort sem þurfti að skipuleggja viðburði, standa í fjáröflun eða bretta upp ermar var hún alltaf tilbúin og hefur verið algjör klettur í æskulýðsstarfinu. Inga Berg einkennist af brosinu, jákvæðninni og staðfastri trú á að allt sé hægt. Hjá henni eru engin vandamál, bara verkefni sem bíða þess að verða leyst. Æskulýðsnefnd Spretts er í dag skipuð þeim Kötlu Gísladóttur, Írisi Bjarnadóttur, Sigríði Þorvarðardóttur, Berglindi Guðmundsdóttur og Þórdísi Gylfadóttur. Ný æskulýðsnefnd mun funda á næstu dögum og gefa í framhaldinu út dagskrá viðburða eftir áramót.

Barna- og unglingaráð ungra Sprettara starfaði einnig í vetur en þar verða einnig breytingar á komandi starfsári. Íris Thelma Halldórsdóttir tekur við formennsku af Jóhönnu Sigurlilju Sigurðardóttur sem mun þó starfa áfram í nefndinni en þær Lilja Guðrún Gunnarsdóttir og Kristín Elka Svansdóttir færa sig upp í Ungmennaráðið.

Heiðruð fyrir ástundun og þátttöku

Yngstu og mikilvægustu knapar félagsins  voru heiðraðir, pollarnir okkar, sem sótt hafa námskeið og viðburði í Spretti síðastliðinn vetur. Að loknum mat og Kahoot voru þeir heiðraðir sem sótt hafa kennslu í Knapamerkjunum. Knapamerkin eru stigskipt kerfi frá 1 til 5 sem tekur á öllum helstu atriðum sem þarf að kunna til að stunda skemmtilega og örugga hestamennsku, og eru frábær grunnur fyrir alla unga knapa. Þá voru heiðraðir þeir ungu Sprettarar sem kepptu á stórmótum, Landsmóti eða Íslandsmóti, fyrir hönd félagsins.

Íslandsmeistari Spretts

Á árinu eignuðust Sprettarar Íslandsmeistara í slaktaumatölti unglinga. Kári Sveinbjörnsson og Gígjar frá Bakkakoti sigruðu með nokkrum yfirburðum og hlutu einkunnina 7,04. Kári og Gígjar hafa verið mjög vaxandi sem keppnispar og verður gaman að fylgjast með þeim í vetur. Innilega til hamingju, Kári!

Framúrskarandi árangur

Fjórir knapar voru sérstaklega heiðraðir fyrir framúrskarandi árangur á keppnistímabilinu.

Birkir Snær Sigurðsson (barnaflokkur) sigraði fjórgang V5 á íþróttamóti Spretts á Laufa frá Syðri-Völlum og varð í 2. sæti í tölti T7 á sama hesti. Þeir sigruðu einnig fjórgang V5 á Unglingalandsmóti UMFÍ, og Birkir sigraði tölt T7 á íþróttamóti Þyts á Radíusi frá Hofsstöðum. Hann fór fyrir hönd Spretts á Landsmót hestamanna á Hólum í sumar og átti þar stórgóða sýningu.

Eyvör Sveinbjörnsdóttir (barnaflokkur) sigraði barnaflokk í gæðingakeppni Spretts á Haga frá Hofi á Höfðaströnd. Þau kepptu á Landsmóti og enduðu í 7. sæti, og náðu einnig 3. sæti í slaktaumatölti á Íslandsmóti og 3. sæti í gæðingakeppni á Suðurlandsmóti. Á síðasta keppnistímabili keppti Eyvör einnig á hryssunni Skál frá Skör og varð meðal annars í 2. sæti í tölti í barnaflokki á opnu Hafnarfjarðarmeistaramóti.

Hilmir Páll Hannesson (unglingaflokkur) var atkvæðamikill á Íslandsmótinu í sumar. Hann náði 3. sæti í gæðingakeppni unglinga á Grími frá Skógarási, 2. sæti í gæðingatölti unglinga á Heiðri frá Eystra-Fróðholti og 3. sæti í slaktaumatölti á Goða frá Oddgeirshólum. Á íþróttamóti Spretts sigraði hann fjórgang og tölt í unglingaflokki á Grími og fimmgang á Goða, og hann sigraði jafnframt A-flokk ungmenna í gæðingakeppni Spretts á Goða.

Kristín Rut Jónsdóttir (unglingaflokkur) sigraði unglingaflokk í gæðingakeppni Spretts á Straumi frá Hofsstöðum í Garðabæ og varð í 4. sæti í unglingaflokki á Landsmóti á sama hesti. Á Íslandsmóti barna og unglinga urðu hún og Goði frá Garðabæ í 2. sæti í fjórgangi unglinga og 3. sæti í gæðingatölti. Hún sigraði einnig í tölti á WR-móti Sleipnis á Straumi, og í tölti og gæðingatölti á Suðurlandsmóti á Flugu frá Garðabæ.

Uppskeruátíðin heppnaðist vel og var kvöldið ánægjulegt í alla staði. Við óskum öllum viðurkenningarhöfum innilega til hamingju með árangurinn.

Scroll to Top