Nú er komið að því að fagna frábæru hestaári og skemmtilegu starfi ungra Sprettara! Fimmtudaginn 5. nóvember verður uppskeruhátíð ungra Sprettara haldin með pompi og prakt í veislusal Samskipahallarinnar. Húsið opnar kl. 18:30 og verður boðið upp á fordrykk við komu. Hátíðin sjálf hefst kl. 19:00.
Á hátíðinni ætlum við að fagna liðnu keppnis- og starfsári, veita viðurkenningar, rifja upp skemmtilegar stundir og gleðjast saman yfir árangri unga fólksins okkar – allt frá pollum til unglinga.
Öllum ungum Spretturum verður boðið í glæsilegt veisluhlaðborð og ís í eftirrétt! Foreldrar, fjölskyldur og aðrir velunnarar eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir og geta keypt sér mat á 4.500 kr.
Það verður nóg um að vera á hátíðinni! Við ætlum að spreyta okkur í skemmtilegri spurningakeppni, skella í eitt stutt bingó og eiga saman frábæra kvöldstund. Og ekki nóg með það – allir ungir knapar fara heim með glaðning að hátíð lokinni! Uppskeruhátíðin er frábært tækifæri til að koma saman, njóta góðs matar og skemmtilegrar samveru og fagna öllu því góða starfi sem fram hefur farið á árinu.
Nauðsynlegt er að skrá sig á Abler.io svo hægt sé að áætla fjölda gesta og panta mat fyrir alla. Beinn hlekkur á skráningu hér: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Njk5Njg=?
Við hvetjum alla unga Sprettara til að mæta og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund!
Takið daginn frá – við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Æskulýðsnefnd Spretts
