Uppskeruhátíð Spretts verður haldin með pompi og prakt laugardaginn 15.nóvember nk. í veislusalnum Arnarfelli í Samskipahöllinni. Miðaverði er stillt í hóf, einungis 7500kr. Í boði verður veislumatur, veislustjórn, skemmtiatriði, verðlaunaafhendingar, skemmtun og gleði. Miðasala fer fram á abler.io, en einnig er hægt að versla sér miða í anddyri veislusalarins fimmtudaginn 6.nóv og þriðjudaginn 11.nóv milli kl.18-19. Endilega fjölmennið Sprettarar og eigum góða kvöldstund saman í upphafi komandi hestatímabils!
Beinn hlekkur á miðasölu hér: (https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NDg4OTk=)
