Ungir Sprettarar stóðu sig frábærlega á Íslandsmóti

 Elva Rún og Roði íslm T3

Nú er ný afstaðið Íslandsmót yngri flokka, mótið var haldið á félagssvæði Sleipnis á Selfossi. Frábært mót og vel að öllu staðið hjá Sleipnisfólki.

Ungir Sprettarar stóðu sig frábærlega þó nokkrir komust í úrslit og lönduðu tvær stúlkur íslandsmeistartitlum.

Hekla Rán Hannesdóttir og Þoka frá Hamarsey urðu Íslandsmeistarar í slaktaumatölti í unglingaflokki.  Elva Rún Jónsdóttir og Roði frá Margrétarhofi urðu íslandsmeistarar í tölti í barnaflokki. Elva Rún varð líka íslandsmeistari í tölti í barnaflokki í fyrra en þá á hestinum Straum frá Hofsstöðum, einstakur árangur hjá þessari ungu og efnilegu hnátu.

Við óskum öllum ungum Spretturum til hamingju með árangur sinn á þessu frábæra móti.

Í Barnaflokki:

T3: Elva Rún Jónsdóttir og Roði frá Margrétarhofi 1.sæti, íslandsmeistarar í barnaflokki

      Inga Fanney Hauksdóttir og Mirra frá Laugarbökkum sigruðu B-úrslit og endaði 5.-6. sæti í A-úrslitum

T4: Elva Rún Jónsdóttir og Kraka frá Hofsstöðum í Garðabæ 4.sæti

V2: Ragnar Bjarki Sveinbjörnsson og Gjafar frá Hæl sigruðu B-úrslit og endaði 4.sæti í A-úrslitum

      Ásta Hólmfríður Ríkharðsdóttir og Komma frá Traðarlandi 8.sæti (3.ja sæti í B-úrslitum)

Fimi: Elva Rún Jónsdóttir og Ás frá Hofstöðum 2.-3.ja sæti.

 

Í unglingaflokki:

T1: Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Garpur frá Skúfslæk sigruðu B-úrslit og endðuðu í 2.sæti í A-úrslitum

      Guðný Dís Jónsdóttir og Straumur frá Hofsstöðum í Garðabæ 4.sæti

      Sigurður Baldur Ríkharðsson og Auðdís frá Traðarlandi 6.sæti.

      Sigurður Baldur Ríkharðsson og Ernir frá Tröð 8. sæti inn í úrslit

T2: Hekla Rán Hannesdóttir og Þoka frá Hamarsey 1.sæti, íslandsmeistarar í unglingaflokki

      Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Polka frá Tvennu 7.sæti (2.sæti í B-úrslitum)

V1: Hulda María Sveinbjörnsdóttir og Garpur frá Skúfslæk 5.sæti

      Guðný Dís Jónsdóttir og Straumur frá Hofsstöðum í Garðabæ 9.sæti (3.ja sæti í B-úrslitum)

      Sigurður Baldur Ríkharðsson og Auðdís frá Traðarlandi 6. inní úrslit en þau drógu sig út úr úrslitum

Hekla Rán og Þoka T2 íslm
Scroll to Top