Sprettarar fá viðurkenningu

Auðunn Jónsson kraftlyftingamaður úr Breiðabliki og Rakel Hönnudóttir knattspyrnukona úr Breiðabliki voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona Kópavogs fyrir árið 2013. Kjörinu var lýst á íþróttahátíð Kópavogs.

Þrír Sprettarar fengu viðurkenningu fyrir sín frábæru afrek í hestaíþróttinni á liðnu ári.

Unga fólkið í Spretti, þau Kristín Hermannsdóttir og Þorvaldur Ingi Elvarsson fengu viðurkenningu fyrir árangur sinn á keppnisbrautinni í Spretti. Einnig fékk Erling Ó Sigurðsson sérstaka heiðursviðurkenningu íþróttaráðs Kópavogs fyrir árangur sinn í hestaíþróttum árið 2013.

Vill Sprettur óska þeim til hamingju með árangur ársins og eru þau mikil hvatning fyrir Sprettara á komandi ári.

Scroll to Top