Undirbúningur fyrir keppni – ungir Sprettarar!

Reiðkennarinn og íþróttadómarinn Ylfa Guðrún Svafarsdóttir býður upp á 30mín einkatíma fyrir unga Sprettara á þriðjudögum. Kennt verður á milli kl.15:00 og 19:30 í Samskipahöllinni hólfi 3. Samtals 6 skipti. Kennsla hefst þriðjudaginn 24.mars og lýkur þriðjudaginn 28.apríl. Möguleiki er að færa sig út á völl þegar fer að vora. Námskeiðið er sérstaklega ætlað börnum, unglingum og ungmennum Spretts.  Verð er 37.000kr. Hægt er að greiða með frístundastyrk. Skráning er á abler.io/shop/hfsprettur og opnar kl.12:00 þriðjudaginn 10.mars.

Scroll to Top