Undirbúningur fyrir keppni III – ungir Sprettarar

Reiðkennarinn og íþróttadómarinn Ylfa Guðrún Svafarsdóttir býður upp á 30mín einkatíma fyrir unga Sprettara á þriðjudögum.

Kennt verður á milli kl.15:00 og 19:30 í Samskipahöllinni og einnig úti á velli. Samtals 4 skipti.

Kennsla hefst þriðjudaginn 19.maí og lýkur þriðjudaginn 9.júní. Möguleiki er að færa sig út á völl ef/þegar knapar vilja.
Skráning fer fram á abler.io/shop/hfsprettur og opnar föstudaginn 8.maí kl.12:00.

Námskeiðið er sérstaklega ætlað börnum, unglingum og ungmennum Spretts.

Verð er 25.000kr. Hægt er að greiða með frístundastyrk.

Scroll to Top