Skip to content

Umsóknir um viðrunarhólf 2024

Ágætu Sprettarar

Af gefnu tilefni minnum við Sprettara á að óheimilt er að nota viðrunarhólfin eins og stendur. Það er einfaldlega vegna þess að við erum að spyrna við því að grasrótin skemmist og hólfin spænist  upp. Vonumst til þess að hægt verði að byrja nota hólfin í snemma í maí ef tíðin verður góð.

Umsóknir um hólf fyrir sumarið 2024.

Nú þegar sól hækkar á lofti er gott að koma hrossunum okkar í útiveru yfir daginn, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti.

Eitt þeirra er í Básaskarði, annað er á gamla Andvarasvæðinu, og þriðja svæðið er vestan við Samskipahöll. Hólf á þessum svæðum eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn.

Ekki er leyfilegt að hafa hross í hólfunum yfir nótt.

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja sér viðrunarhólf á þessum svæðum er bent hafa samband við Lilju framkvæmdarstjóra á tölvupósti sprettur@sprettarar.is fyrir 27. apríl 2024.

Hvert hesthús/eining getur sótt um eitt hólf.
Verð fyrir hvert hólf er 14.000kr

Eingöngu skuldlausir félagsmenn fá hólf.

Nauðsynlegt er að fram komi Fullt nafn, kennitala, farsímanúmer og húsnúmer hesthús, einnig er gott að vita hversu lengi viðkomandi ætlar sér að nýta hólfið og hvar/ef viðkomandi hefur verið með hólf áður.

Stefnan er að félagsmenn fái sama hólf og það hefur verið með áður. Við biðjum félagsmenn að athuga stöðuna á hólfinu sem þau voru með sl sumar og láta vita ef það eru brotnir staurar, slitin bönd eða ónýt handföng. Það auðveldar okkur að fá yfirsýn yfir nauðsynlegt viðhald.

ATH! Óheimilt er að setja upp beitarhólf á svæði Spretts nema í samráði við framkvæmdastjóra.


Stjórn og framkvæmdastjóri Spretts