Kæru Sprettarar.
Nú þegar sól hækkar á lofti er óskaplega gott að koma hrossunum okkar í útiveru yfir daginn, við erum svo lánsöm að hafa góð græn svæði til umráða hjá okkur hér í Spretti. Eitt þeirra er Básaskarð, þar sem hafa nú verið skipulögð rúmlega 30 beitarhólf. Annað er við gamla Andvaravöllinn þar stendur til að girða í fyrstu u.þ.b 20 beitarholf. Hólf þessi eru ætluð til útiveru hrossa okkar yfir daginn. (Ekki er leyfilegt að hafa hross í hólfunum yfir nótt)
Nýbúið er að bera á svæðin og þ.a.l. er óæskilegt að beita þar hrossum fyrr en í fyrsta lagi 12. maí.
Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja sér beitarhólf í Básaskarði og við Andvaravöll er bent hafa samband við Magnús framkvæmdarstjóra á tölvupósti ma******@********ar.is eða í síma 8933600 Nauðsýnlegt er að fram komi Fullt nafn, kennitala og húsnúmer hesthús.
Óheimilt er að setja upp beitarhólf á svæðinu nema í samráði við framkvæmdastjóra.
Sumarkveðja
Framkvæmdastjóri