Umsókn um viðrunarhólf 2026

Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leigja sér viðrunarhólf á félagssvæði Spretts þurfa að sækja um slíkt í gegnum heimasíðu Spretts, www.sprettur.is, undir flipanum „bókanir og beiðnir“ eigi síðar en 27. apríl nk. Viðrunarhólfum verður úthlutað 1. maí svo félagsmenn geti farið að  hlúa að hólfunum.

Ekki er heimilt að nota viðrunarhólfin fyrr en þeim hefur verið úthlutað og skv. nýtingartímabili frá miðjum maí. Ástand hólfa getur einnig haft áhrif á opnun hólfanna.

Hólfin eru staðsett í Básaskarði, „á gamla Andvarasvæðinu“ og þriðja svæðið er vestan við Samskipahöll. Hólf á þessum svæðum eru ætluð til útiveru hrossa yfir daginn, ekki er leyfilegt að hafa hross í hólfunum yfir nótt. Hvert hesthús/eining getur sótt um eitt hólf. Eingöngu skuldlausir félagsmenn fá hólf.

Hægt er leigja viðrunarhólf á eftirfarandi tímabili:

  • Fyrra tímbil: 1.maí til 30.júní verð 14.000kr.
  • Seinna tímabil: 1.júlí til 15.september verð 14.000kr.
  • Ef viðrunarhólfið er leigt allt tímabilið, 1.maí til 15.sept., kostar það 25.000kr.

Stefnan er að félagsmenn fái sama hólf og það hefur verið með áður.

Á næstu dögum og vikum verður farið í lagfæringar staurum og böndum viðrunarhólfa.

Hér má finna reglur um notkun viðrunarhólfa: Reglur um viðrunarhólf

 

Scroll to Top