Að gefnu tilefni skal það áréttað að það gilda ákveðnar umgengnis og umferðarreglur í Samskipa- og Húsasmiðju reiðhöllunum. Fólk er hvatt til að kynna sér þær og fara eftir þeim.
Notkun er einungis fyrir þá sem hafa greitt félagsgjöld og greitt er sérstaklega fyrir notkun á reiðhöll.
- KNÖPUM BER AÐ HREINSA UPP EFTIR HESTANA SÍNA og eru verkfæri til þess staðsett í reiðsal.
- Látið aðra vita áður en teymt er inn á völlinn. Farið á bak og af baki inni á miðjum vellinum en ekki á reiðleiðum í útjaðri vallar.
- Fetgangur skal riðinn á innri sporaslóð þegar aðrir knapar ríða á hraðari gangtegund á ytri sporaslóð. Þeir sem ríða hægari gangtegund skulu ávallt víkja fyrir þeim er hraðar fara.
- Tvær hestlengdir skulu ávallt vera milli hesta. Ekki má ríða hlið við hlið eða hafa tvo hesta til reiðar þegar aðrir eru í salnum.
- Hægri umferð gildir þegar knapar mætast úr gagnstæðri átt ef riðinn er sami hraði. Undantekning frá því er ef annar knapi ríður hraðar skal honum eftirlátin ytri sporaslóð.
- Knapi sem ríður bauga, á hringnum, eða aðrar reiðleiðir inni á velli veitir þeim forgang sem ríða allan völlinn á sporaslóð.
- Ekki má stöðva hestinn á ystu sporaslóð. Ef stöðva þarf er best að gera slíkt inni á miðjum velli nema annað sé samkomulag þeirra í milli er stunda æfingar á vellinum hverju sinni.
- Hringtaumsvinna fer engan veginn saman við þjálfun í reið og skal víkja nema um annað sé sérstaklega samið.
- Forðast skal að ríða þvert í veg fyrir aðra knapa.
- Fylgja ber hefðbundnum reiðleiðum á vellinum.
- Reiðkennsla niðri á gólfi er bönnuð í opnum tímum.
- Ekki má hafa lausa hesta á vellinum meðan á reiðþjálfun stendur né binda hesta þar inni.
- Knapar skulu sýna kurteisi og tillitssemi og forðast óróa eða hávaða.
- Öll þjálfun á völlum sem félagið leggur félagsmönnum til er á eigin ábyrgð.
- Áhorfendur gangi vel um og noti ruslafötur.
- Reykingar eru bannaðar.
- Einungis skuldlausir félagar hafa aðgang. Börn yngri en 12 ára noti reiðhöll einungis í fylgd með forráðamanni.
- Meðferð áfengis og annara vímuefna er bönnuð.
- Drukknu fólki ber að vísa úr húsinu umsvifalaust.
- Hjálmaskylda er í reiðhöllinni.
- Sá sem síðastur er út úr höllinni skal draga frá tjöldin svo höllin sé ekki hólfuð niður á næturnar.
Þeir sem nota reiðsalinn í Reiðhöllinni sýni starfsfólki og öðrum reiðmönnum tillitsemi og virðingu.
Reiðhallardagatalið fyrir komandi mánuði er uppfært í lok líðandi mánaðar og bókunum bætt jafnóðum inn og þær berast eftir það. Bóka þarf höllina fyrirfram hjá framkvæmdastjóra ma******@********ar.is eða í síma 8933600.