Kennt verður á miðvikudagskvöldum kl. 19:30 í Samskipahöllinni, 1x í viku, 60mín hver tími, 14 skipti. Námskeiðið hefst miðvikudaginn 22. jan á bóklegum tíma þar sem farið verið yfir reiðleiðir og starf vetrarins rætt.
Lokamarkmið námskeiðsins er að hópurinn komi fram á Dymbilvikusýningu Spretts 16. apríl, en ekki er skylda að taka þátt í sýningunni ef einhver hefur ekki áhuga á því.
Námskeiðið er frábært tækifæri til þess að efla leiðtogahlutverk sitt við hestinn sinn, ná góðri stjórn á reiðleiðum og læra mismunandi mynsturreiðir og njóta þess að vera á hestinum sínum í góðum hópi… gaman saman! Mikilvægt er að hafa þor til að ríða tölt/brokk og fylgja hópnum. Hraða verður ekki hagað eftir hægasta knapa, heldur þurfa allir að halda við hópinn.
Námskeiðið er opið fyrir allar Sprettskonur 18 ára og eldri sem vilja taka þátt í skemmtilegu og metnaðarfullu námskeiði. Þó er sett krafa um að knapi hafi grunnstjórn á hesti sínum.
Kennari er Guðrún Margrét Valsteinsdóttir, reiðkennari frá Hólaskóla.
Verð er 25.000kr
Dagskrá:
22. janúar 2024 – Bóklegur tími/fundur. Farið yfir helstu reiðleiðir og ýmis Töltgrúppumál.
29. janúar 2024 – Fyrsti reiðtími
5. febrúar 2024 – Reiðtími
12. febrúar 2024 – Reiðtími
19. febrúar 2024 – Reiðtími
26. febrúar 2024 – Reiðtími
5. mars 2024 – Reiðtími
12. mars 2024 – Reiðtími
19. mars 2024 – Reiðtími
26. mars 2024 – Reiðtími
2. apríl 2024 – Reiðtími
9. apríl 2024 – Æfing fyrir Dymbilvikusýning
16. apríl 2024 – Dymbilvikusýning
23. apríl 2024 – Lokaæfing og Pálínuboð
Skráning er hafin og fer fram á sportabler.com.