Tökum tillit og sýnum aðgát

Nú þegar vor er komið í loft og umferð eykst á reiðvegunum okkar viljum við minna á mikilvægi almennrar tillitssemi og almennrar aðgátar.
Mikilvægt er að ekki sé riðið hratt aftan að hrossum og tillit tekið þegar mæst er. Við erum á ýmsum stigum í hestamennskunni og hrossin misviðkvæm.

Jafnframt er mælst er til þess að ekki sé verið að skeiðleggja eða hrossum hleypt innan hverfis þegar flestir eru á svæðinu, eftir almennan vinnutíma á virkum dögum og um helgar.

Hér má svo finna umferðareglur hestamanna í þéttbýli sem hestamenn settu sér og samþykktu á LH þingi fyrir nokkrum árum.

  • Hestamenn víkja til hægri á reiðleiðum.
  • Hestar sem eru teymdir skulu ávallt vera hægramegin og ekki fleiri en tveir ( þrír til reiðar ).
  • Reiðhjálmar eru sjálfsögð öryggistæki.
  • Endurskinsmerki í skammdegi veita hestum og mönnum aukið öryggi.
  • Lausir hundar eru ekki leyfilegir á reiðleiðum og í hesthúsahverfum
  • Áfengi og útreiðar fara ekki saman.
  • Sýnum tillitsemi, ríðum ekki hratt á móti eða aftanundir aðra reiðmenn.
  • Fari margir hestamenn saman í hóp skal ríða í einfaldri röð ef umferð er á móti.
  • Ríðum á reiðvegum og slóðum þar sem því verður viðkomið.
  • Teymum hesta, rekstrar eru bannaðir í þéttbýli.
Scroll to Top