Tökum til

Umgengni um hverfin okkar er almennt með ágætum og metnaður í að halda því snyrtilegu. Misbrestur er þó á einstaka stað. Það er mikilvægt að halda umhverfi hesthúsanna snyrtilegu svo hestamennska fái ekki á sig neikvæða ímynd. Það hjálpar okkur líka við að þrýsta á sveitarfélögin um að snyrta umhverfið og aðstoða okkur.

Reiðgatan á Heimsenda næst Kórnum blasir við gestum Kórsins auk íbúa húsanna þar fyrir ofan. Frágangur Kópavogsbæjar er langt í frá ásættanlegur en við bætum gráu ofan á svart með því að setja þarna hluti sem ekki eiga þar heima. Má þar nefna brotna glugga, ónýt bretti, fiskikar og fleira.

Kerrustæðið er annað svæði sem farið er að safna ýmsum aðskotahlutum sem sumir tengjast líklega ekki endilega hestamönnum. Fljótlega mun Kópavogsbær merkja slíka hluti og síðan fjarlægja.

Þessu til viðbótar má finna á stöku stað ýmislegt sem betur má fara.

Er það ósk að hesthúsaeigendur opni augun og líti í kringum sig hvort ekki séu hlutir við húsin sem betur væru geymdir á öðrum stöðum.

Kveðja,

Umhverfisnefnd/Sjálfbærninefnd Spretts

Scroll to Top