Þriðju vetrarleikar Spretts og sjálfboðaliðar til aðstoðar

Þriðju vetrarleikar Spretts fara fram næstkomandi sunnudag þann 15. mars í Samskipahöllinni. Skráning fer fram í anddyri Reiðhallarinnar milli klukkan 11-12. Vöfflur verða í boði fyrir þátttakendur meðan á skráningu stendur.

Stjórn Spretts auglýsir eftir því hvort það séu ekki áhugasamir félagsmenn sem væru til í að taka að sér umsjón með vetrarleikunum. Þetta er sjálfboðavinna og virkilega skemmtilegt að kynnast störfum fyrir félagið, svo sem að rita, þylja, sjá um skráningu á mót, stjórna hurð inn í höll og fleira. Þeir sem vilja hjálpa til með framkvæmd eru beðnir um að senda póst á stjorn(hjá)sprettur.is.

Keppt verður á hefðbundinn hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti. Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra.

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.

Mótið hefst kl 13:00

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
– Pollar (9 ára og yngri) – teymdir
– Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
– Börn minna keppnisvön (10-13 ára)
– Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
– Unglingar – minna keppnisvanir (14-17 ára)
– Unglingar – meira keppnisvanir (14-17 ára)
– Ungmenni- minna keppnisvön (18-21 árs)
– Ungmenni – meira keppnisvön (18-21 árs)
– Konur II – minna keppnisvanar
– Karlar II – minna keppnisvanir
– Heldri menn og konur (60 ára +)
– Konur I – meira keppnisvanar
– Karlar I – meira keppnisvanir
– Opinn flokkur (karlar og konur)

Vonumst til að sjá sem flesta!

Scroll to Top