Þriðju vetrarleikar Spretts

Þriðju og síðustu vetrarleikar Spretts verða haldnir sunnudaginn 13.apríl. Skráning fer fram í rennunni í Samskipahöllinni (ekki veislusalnum) milli klukkan 11-12. Keppt verður á hefðbundin hátt vetrarleika, uppá vinstri hönd, hægt tölt og svo fegurðargangur. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti.

Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra. Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 500 kr, unglingar 1000 kr og aðrir flokkar 1500 kr.

Mótið hefst kl 13:30 og fer fram í Samskipahöllinni.

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:
Pollar (9 ára og yngri) – teymdir pollar
Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir
Börn – minna keppnisvön (10-13 ára)
Börn – meira keppnisvön (10-13 ára)
Unglingar – (14-17 ára)
Ungmenni – (18-21 árs)
Konur II – minna keppnisvanar
Karlar II – minna keppnisvanir
Heldri menn og konur (60 ára +)
Konur I – meira keppnisvanar
Karlar I – meira keppnisvanir
Opinn flokkur (karlar og konur)

Vonumst til að sjá sem flesta!

Scroll to Top