Þriðja mót í Blue Lagoon mótaröðinni verður haldin miðvikudaginn 25. mars nk. Keppni hefst kl.17:00 í Samskipahöllinni í Spretti. Mótið er opið öllum knöpum í yngri flokkum. Keppt verður í tölti og pollaflokkii. Vegna þess hversu vinsæl BLUE LAGOON mótaröðin er í ár verðum við að grípa til fjöldatakmarkana í skráningu. Fyrir næsta ár munum við endurskoða umgjörð og skipulag mótanna til að mæta vaxandi eftirspurn.
Eftirtaldir flokkar verða í boði í tölti; T3– Barnaflokkur (10-13ára): T7 -(minna keppnisvanir). Max 15 keppendur. T3- (meira keppnisvanir). Max 15 keppendur. T7 – Unglingaflokkur (14-17ára): T3. Max 15 keppendur. T3 – Ungmennaflokkur (18-21árs): T3. Max 15 keppendur. ATH! Ekki er leyfilegt að skrá í bæði T7 og T3 á þessu móti.
Einungis er leyfilegt að skrá 1 hest á hvern knapa á þessu móti
6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.
Eftirtaldir flokkar verða í boði; (EKKI ERU RIÐIN ÚRSLIT Í ÞESSUM FLOKKI) „Pollatölt – pollaflokkur“ er ætlaður pollum sem eru teymdir eða með aðstoðarmenn „Pollatölt – meistaraflokkur“ er ætlaður pollum sem ríða sjálfir.
Skráning opnar 16. mars og lýkur á miðnætti sunnudaginn 22. mars.
ATH! Ekki er tekið við skráningum eftir að skráningarfresti lýkur. Skráningargjöld eru 4500 kr.
Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is, ókeypis í allan vetur og einnig á rásum Eiðfaxa á myndlykli Símans og myndlykli Vodafone.
Ráslistar og dagskrá verður birt þriðjudaginn 24.mars hér á facebook síðu mótsins og einnig inná Horseday appinu. Veitingasala verður opin í veislusalnum.
Vonumst til að sjá sem flesta í Samskipahöllinni miðvikudaginn 25. mars nk.
