Skip to content

Þrautabrautar og leikjadagur æskunnar

Sumardaginn fyrsta, þann 20.apríl, verður haldinn þrautabrautar- og leikjadagur fyrir æskuna í Spretti. Sett verður upp þrautabraut í Samskipahöllinni ásamt því að farið verður í leiki, á hestbaki. Við byrjum á allra yngstu knöpunum kl.10, börn og unglingar mæta kl.11 og svo mæta allir saman kl.12. Til að áætla fjölda „sumargjafa“ og veitinga er nauðsynlegt að skrá sig til leiks í sportabler, heitið er þrautabrautar og leikjadagur æskunnar, þátttaka er ókeypis.

Hér er hlekkur á skráningu;
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTgxMTU=?

Skipt verður í hópa eftir aldri;

Kl.10-11 Pollar 3-9 ára
Kl.11-12 Börn og unglingar 10-17 ára
Kl.12-13 Allir hittast, ís/krap og léttar veitingar í boði, sumargjafir afhentar

Sjáumst hress í sólskinsskapi sumardaginn fyrsta!
Æskulýðsnefndin