Fimmtudaginn 30. apríl nk. verður haldinn Þrautabrautar- og leikjadagur Spretts í Samskipahöllinni!
Dagurinn er ætlaður ungum Spretturum. Aldursviðmið eru pollar, börn og unglingar – en allir eru velkomnir!
Sett verður upp hestaþrautabraut í Samskipahöllinni þar sem hver og einn mætir með sinn hest. Það má mæta í búningi ef stemming er fyrir því
Skipt verður í hópa eftir aldri, sjá dagskrá og tímasetningar hér að neðan.
Að loknum öllum flokkum í hestaþrautabraut verður boðið til grillveislu og farið í skemmtilega leiki í Samskipahöllinni.
Dagskrá:
17:00 – 17:30 Pollar
17:30 – 18:15 Börn og unglingar
18:15 – 19:00 Grillpartý og leikir
Skráning er opin fram til miðnættis miðvikudagsins 29.apríl. Þrautabrautin og grillið er ókeypis fyrir alla unga Sprettara en nauðsynlegt er að skrá sig til að áætla fjölda verðlauna og einnig fyrir grillið.
Beinn hlekkur á skráningu hér:
Vonumst til að sjá sem flesta!
