Þrauta- og leikjadagur Spretts

Þrauta- og leikjadagur Spretts fer fram föstudaginn langa þann 19.apríl. Hefst skemmtunin kl.11:00 í Samskipahöllinni.

Hvetjum alla krakka til að mæta í grímubúningum og með hesta. Veitt verða veruðlaun fyrir besta búninginn og besta tímann í gegnum þrautabrautina í hverjum flokki.

Flokkarnir eru pollar teymdir, pollar ríðandi og börn 10 ára og eldri.

Allir sem taka þátt fá páskaegg í þátttökuverðlaun. Eftir keppnina verða grillaðar pylsur.

Sjáumst hress á einum skemmtilegasta æskulýðsviðburði Spretts.

Scroll to Top