Keppni í fimmgangi í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts, fór fram á sunnudaginn en fresta þurfti viðburðinum vegna óhagstæðra veðurskilyrða á föstudeginum.

„Brokk er hestavöruverslun sem rekur bæði netverslun á brokk.is og verslun að Hlíðarenda 22 í Spretti. Brokk er frumkvöðull í öryggismálum hestafólks. Helite öryggisvestin, sem blása út á 0,01 sekúndu eru notuð af tæplega 3000 reiðmönnum á Íslandi. Í versluninni má einnig finna fjölbreytt úrval af vönduðum vörum fyrir hestafólk, þar á meðal öryggisístöð, Samshield hjálma og fóðurbæti og undirburð á samkeppnishæfu verði. “

Það voru þau Þórunn Kristjánsdóttir og Týr frá Hólum sem stóðu uppi sem sigurvegarar eftir æsispennandi keppni en skera þurfti úr á milli hennar og þeirra Auðar Stefánsdóttur og Ósk frá Vindási með dómararöðun. Einkunn þeirra beggja 6,17.
Í þriðja sæti voru Árni Geir Norðdahl Eyþórsson og Svikari frá Litla-Laxholti

Sigurvegari B-úrslita voru þeir Gunnar Eyjólfsson og Kristall frá Litlalandi í Ásahreppi
Liðaplattinn fór í þetta sinn til lið Frosta, þær Auður Stefánsdóttir og Glódís Helgadóttir voru í A-úrslitum og Kristín Ingólfsdóttir í B-úrslitin. Frábær árangur hjá þeim.

Það var svo Rafnar Karl, „Rabbi“ sem var dreginn út í sjálfboðaliðahappadrættinu og fékk 7.500 kr gjafabréf í Lífland. Rabbi stendur vaktina í hurðinni og hefur gert undanfarin ár. Án öflugra sjálfboðaliða yrði svona deild ekki að veruleika og viljum við nýta tækifærið og þakka öllum sjálfboðaliðum sem taka þátt í þessu Áhugamannadeildarverkefni kærlega fyrir þeirra framlag.

Staðan í liða- og einstaklingskeppninni er æsispennandi nú þegar tvær keppnisgreinar eru eftir


Nú tekur við stutt páskafrí en við komum aftur að vörmu spori með töltkeppni 10. apríl
Höfundur: Selma Rut Gestsdóttir
