Þorrablót Spretts og Fáks verður haldið laugardaginn 8.febrúar nk. Veislan fer fram í Arnarfelli, veislusalnum í Samskipahöllinni. Á næstu dögum munum við segja betur frá dagskránni, hver verður veislustjóri o.s.frv. en nefndin hefur lofað góðu fjöri!
Borðapantanir fara fram á [email protected] og er miðaverð 12.900kr.