Skip to content

Þorrablót Spretts 3.feb

Þorrablót Spretts verður haldið í veislusal Spretts þann 3. feb nk.

Borðapantanir/miðapantanir fara fram í gegnum netfangið Sprettur@sprettarar.is, panta verður miða/borð fyrir 31.jan

Miðaverð er 11.900kr eingöngu verður hægt að panta miða í forsölu.

Hreimur Örn Heimisson verður veislustjóri kvöldsins.

Sprettskórinn tekur nokkur lög.

Uppboð verður á folatollum á vegum hrossaræktarnefndar Spretts.

DJ Atli Kanill mun svo halda uppi stuðinu á dansgólfinu fram á nótt.

Hvetjum hestafólk um að sameinast og skemmta sér á Þorrablóti Spretts.

Miðar verða afhentir á föstudag, 2.feb kl 18-19 í Samskipahöllinni.