Sýningarhópur ungra Sprettara

Sýningarhópur Spretts. Óskað er eftir ungum Spretturum til að setja saman sýningaratriði fyrir reiðhallarsýningar. Boðið verður upp á tvo mismunandi sýningarhópa, fyrir þá sem eru meira vanir og fyrir þá sem eru minna vanir.

Meira vanir: Knapar sem geta riðið hratt á tölti, brokki og stökki. Geta riðið flóknar reiðleiðir. Stefnt er að því að taka þátt í stórsýningu Fáks, Dymbilvikusýningu Spretts og sýningunni Æskan & hesturinn.

Minna vanir: Knapar sem geta riðið tölt/brokk. Geta riðið einfaldar reiðleiðir. Stefnt er að því að taka þátt í Dymbilvikusýningu Spretts og sýningunni Æskan & hesturinn.

Vinsamlegast athugið að það er afar mikilvægt að knapar séu með þæga og meðfærilega hesta sem þola tónlist, lófaklapp og mikið áreiti og séu undir stjórn.

Fyrsti æfing verður mánudaginn 9.mars kl.20:00 í Samskipahöllinni án hests. Námskeiðið/æfingarnar eru ókeypis fyrir unga Sprettara. Nauðsynlegt er að skrá sig í abler.io/shop/hfsprettur

Scroll to Top