Sýningarhópar ungra Sprettara hafa verið starfandi undanfarnar vikur fyrir Dymbilvikusýningu og stefnt er að því að fara með sömu atriði á sýninguna Æskan & hesturinn sem fer fram sunnudaginn 26.apríl.
Við bjóðum öllum þeim börnum og unglingum sem hafa áhuga á að bætast í hópinn. Þeir sem hafa áhuga sendið póst á th*****@******ur.is í síðasta lagi fyrir miðnætti miðvikudaginn 22.apríl.
Það verður haldin generalprufa laugardaginn 25.apríl í nýju reiðhöllinni í Sörla í Hafnarfirði.
Þau sem voru í sýningarhóp ungra Sprettara hafa fengið póst í gegnum abler, en þið megið gjarnan staðfesta við mig þar á spjallinu í abler hverjir munu vera með í atriðinu og einnig væri gott að fá að vita hverjir komast ekki. Við munum reyna að sameinast í kerrur svo allir fái far í Hafnarfjörð fyrir hestinn sinn. Vinsamlegast látið mig vita fyrir miðnætti miðvikudaginn 22.apríl nk.
