Skip to content

Stjörnuhlaupið 18.maí 2024

Í samstarfi við hlaupahóp Stjörnunnar hefur stjórn Spretts gefið leyfir fyrir því að Stjörnuhlaupið 2024 fari fram á hluta af hestastígum sem er á hlaupaleiðinni (sjá kort neðan) og að þeir verði lokaðir um tíma á meðan hlaupinu stendur.  Þessi hluti hestastígs er þegar komið er ofan af Sandahlíð rétt fyrir ofan Guðmundarlund og að Skátaheimilinu í Garðabæ.  Þetta er 1,9km kafli.  

Hér er viðburðurinn okkar í hnotskurn:  

  1. Boðið verður upp tvær vegalengdir;  annars vegar 11 km hring og hins vegar 22 km vegalengd sem eru þá 2 hringir á sömu braut.   
  2. Hlaupið byrjar kl. 10:00 laugardaginn 18. maí.   Ræst er og endað er við íþróttahúsið Miðgarð.
  3. Gera má ráð fyrir að hlaupaviðburðurinn standi yfir í um 3,5 klst eða frá 10:00 -14:00 þennan dag.
  4. Hér er leiðin á korti https://connect.garmin.com/modern/course/156313773?fbclid=IwAR1cm-eLRz0MB5kVbjkB3KUDNiKrZR59RYg6Nwkgc9TyGc8fWW96BO8hfGk

Þessi hluti stígsins verði lokaður fyrir hestaumferð milli kl. 10:00 – c.a. 14:00 eða þar til síðasti hlauparinn er farinn í gegn á þessum hluta sem gæti verið á milli 13:00 og 13:30.  (sjá mynd 2 – lokanir).