Stakir einkatímar hjá Árnýju Oddbjörgu

Einn vinsælasti reiðkennari Spretts, Árný Oddbjörg, býður upp á stakan einkatíma, fimmtudaginn 2.apríl Skírdag, til að mæta umfram eftirspurn eftir reiðtímum. Tímasetningar í boði milli kl.11-15. Kennt verður í Samskipahöll, 30mín hver tími. Líklegt er að Árný muni bjóða upp á fleiri svona staka kennsludaga í apríl og maí.

Verð fyrir stakan tíma er 8700 fyrir fullorðna og 6700 fyrir yngri flokka.

Skráning opnar þriðjudaginn 24.mars kl.12:00 og fer fram á abler.io/shop/hfsprettur. Ef námskeiðið kemur ekki inn kl.12:00 þá er gott að skrifa námskeiðsheitið eða hluta af því í leitargluggann.

Að gefnu tilefni viljum við minna á að skuldlausir félagsmenn í Spretti ganga fyrir í skráningum á námskeið sem haldin eru á vegum félagsins.

Scroll to Top