Æskulýðsnefnd Spretts og hestamannafélagið Sprettur bjóða ungum Spretturum til kaups, með niðurgreiðslu frá félaginu, merktan Spretts fatnað. Fullorðnum er einnig velkomið að panta sér fatnað á fullu verði. Allir skráðir ungir Sprettarar í félagatali fá niðurgreiðslu á fatnaði að andvirði 8.000kr frá hestamannafélaginu Spretti.
Hér í skjalinu má sjá myndir og allar upplýsingar um þær flíkur sem eru í boði:
Hér má sjá verð (án niðurgreiðslu) fyrir hverja flík. Hægt er að panta eina eða fleiri flíkur en niðurgreiðslan er 8.000kr á hvern ungan Sprettara. Allur fatnaður verður merktur hestamannafélaginu Spretti með nettu lógói, á brjósti eða upphandlegg.
Már 18.000kr
Mía 18.000kr
Esjufjöll 8.000kr
Patrikshraun 9.000kr
Borg 26.000kr
Berg 7.000kr
Vindur 15.000kr
Lögð er inn pöntun á fatnaði með útyllingu á skjalinu og það sent inn. Hægt er að panta fatnað til og með 18.maí. Hægt er að fara í verslanir Icewear til að máta flíkurnar. Hverri og einni pöntun verður svarað þar sem gefin verður upp sú upphæð sem hver og einn greiðir ásamt banka – og reikningsupplýsingum fyrir millifærslu.
Hvetjum alla Sprettara til að næla sér í merktan fatnað á góðu verði.
Fyrir nánari upplýsingar má senda póst á aeskulydsnefnd(hja)sprettarar.is
