Opið er fyrir skráningar á Áhugamannamót Hrímnis og Töltgrúppunnar sem verður haldið í Spretti 10.-12.júní.
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng og rennur skráningarfrestur út 5.júní.
T7, Tölt án hraðabreytinga. Byrjendur, minna og meira vanir
T3, Tölt með hraðabreytingum. Minna og meira vanir
T4, Slaktaumatölt. Minna og meira vanir
V4, Fjórgangur. Minna og meira vanir
F2, Fimmgangur. Minna og meira vanir.
Skeið og brokk-kappreiðar
Gæðingaskeið
Boðið verður uppá sérstakan þrígang fyrir byrjendur þar sem riðið verður fegurðartölt, brokk og fet.
Skeið og brokk kappreiðar.
Í skeiðkappreiðum verður boðið uppá bæði Opinn flokk og Áhugamannaflokk, þeir sem keppa í opnum flokk senda tilkynningu á ah******************@gm***.com
Keppt verður í þremur styrkleikarflokkum. Byrjendur, minna og meira vanir.
Til viðmiðunnar þá skrá þeir keppendur sig í flokkinn meira vanir ef þeir hafa náð 5,80 í þeirri grein sem þeir ætla að keppa í.
Allir sem ætla að skrá sig í byrjendaflokka verða að velja flokinn „annað“
T4 (Slaktaumatölt) er í Sportfeng T2
Fyrirspurnum verður svarað á netfanginu ah******************@gm***.com
Skráning fer fram í gegnum Sportfeng http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add
Mótið er opið öllum áhugamönnum og konum og hvetjum við alla til að taka þátt í skemmtilegu móti hjá okkur í Spretti. 18 ára aldurstakmark (Ungmennaflokkur)