Skráning á WR íþróttamót Spretts

Opið WR íþróttamót Spretts verður haldið 16.- 18. maí nk. á félagssvæði Spretts. Skráning hefst föstudaginn 9.maí á sportfengur.com og stendur til miðnættis þriðjudaginn 13. maí. Nánari dagskrá verður auglýst þegar skráning liggur fyrir.

Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið
1.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2- Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
2.flokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Unglingaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2- Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Barnaflokkur: Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7

100m skeið – 150m skeið – 250m skeið

Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka

Skráningargjöld eru 5.000 kr í öllum flokkum nema í barna og unglingaflokkum sem og skeiðgreinum ( 250m, 150m, og 100m ) sem þau eru 4000 kr

Scroll to Top