Skráning hefst á morgun 1. júni fyrir Opna Íþróttamót Spretts (WR) og Úrtöku fyrir HM sem haldið verður 10.-14. júni n.k. á félagssvæði Spretts.
Dagskráin verður þannig að fyrri úrtakan verður miðvikudaginn 10. júni og sú seinni verður á sjálfu Íþróttamótinu sem hefst formlega föstudaginn 12. júni.
Skráning er á sportfengur.com og stendur til miðnættis 7. júni.
Vinsamlegast athugið að þeir sem eru að skrá sig í úrtökuna þurfa að velja viðburðinn „Úrtaka fyrir HM“
Þeir sem skrá sig á Íþróttamótið skrá sig undir viðburðinn „Opið Íþróttamót Spretts“
Keppt verður í eftirtöldum flokkum og greinum:
Meistaraflokkur: Fjórgangur V1 – Tölt T1 – Tölt T2 – Fimmgangur F1 – Gæðingaskeið
1.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
2.Flokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Ungmennaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 –
Gæðingaskeið
Unglingaflokkur : Fjórgangur V2 – Tölt T3 – Tölt T2 – Tölt T7 – Fimmgangur F2 – Gæðingaskeið
Barnaflokkur : Fjógangur V2 – Tölt T3 – Tölt T7
Kappskeiðreiðar : 100m skeið – 150m skeið – 250 m skeið
Mótanefnd áskilur sér rétt til að sameina og/eða fella niður greinar og flokka ef það næst ekki nægileg þátttaka.
Skráningagjöld eru :
Úrtaka fyrir HM kr. 6.000 pr úrtöku (kr. 12.000 fyrir tvöfalda úrtöku)
Meistaraflokkur og gæðingaskeið kr. 5500
1 og 2 flokkur og Ungmennaflokkur kr. 5000
Unglinga- og barnaflokkur kr. 3000
Skeiðgreinar kr. 3000
Ef þið lendið í einhverjum vandræðum við skráningu þá vinsamlegast sendið tölvupóst á Karen netfangið ka***@hi.is eða á Huldu á netfangið hu**********@gm***.com