Skip to content

Skráning á 1.vetrarleika Spretts

Fyrstu vetraleikar Spretts verða haldnir sunnudaginn 25.feb nk. Mótið hefst kl 11:00 í Samskipahöllinni.

Sú ákvörðun hefur verið tekin að breyta til með form vetraleikanna nú í vetur, á fyrsta mótinu verður keppt í T7 í öllum flokkum, nema pollaflokk, skráning fer fram í gegnum Sportfeng, skráningu lýkur föstudaginn 23.feb kl 23:59.

Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti.

Tölt T7

Knapi velur upp á hvora hönd hann hefur keppni – raðað í holl eftir því.
Þulur stýrir forkeppni og úrslitum
Forkeppni:
    Hægt tölt svo snúið við
    Frjáls ferð á tölti
Úrslit:
    Hægt tölt og svo snúið við
    Frjáls ferð á tölti

Ráslistar verða birtir laugardaginn 24.feb.

Hver keppandi má aðeins skrá í einn flokk og eru félagar hvattir til að sýna metnað við skráningu í flokka. Nefndin áskilur sér rétt til að sameina flokka ef ekki er næg þátttaka í einhverjum þeirra. Mótið er ætlað skuldlausum félagsmönnum í hestamannafélaginu Spretti.

Í barna og unglingaflokki verða meira og minna vanir og eru foreldrar beðnir um að senda póst á motanefnd@sprettarar.is ef að þau ætla að skrá í minna vana.

Skráningargjöld eru eftirfarandi: pollar frítt, börn 800 kr, unglingar 1300 kr og aðrir flokkar 1800 kr.

Mótið hefst kl 11:00

Boðið verður upp á keppni í eftirtöldum flokkum í þessari röð:

Pollar (9 ára og yngri) – teymdir Pollar (9 ára og yngri) – ríða sjálfir

Barnaflokkur, meira og minna vön

Unglingaflokkur, meira og minna vanir

Ungmennaflokkur

Heldri menn og konur (60 ára +) Í Sportfeng fullorðinsflokkur 3

Fullorðnir minna vanir, merkt í Sportfeng fullorðinsflokkur 2

Fullorðnir meira vanir, merkt í Sportfeng fullorðinsflokkur 1

Meistaraflokkur (áður opinn flokkur)

Vetrarleikarnir verða þriggja móta röð þar sem verðlaunað er fyrir hvert mót, auk þess sem keppendur safna stigum úr öllum þremur mótunum og verða stigahæstu knaparnir í hverjum flokki verðlaunaðir á síðasta mótinu.

1.sæti gefur 10 stig 2.sæti gefur 8 stig 3.sæti gefur 6 stig 4.sæti gefur 4 stig 5.sæti gefur 2 stig 1 stig fæst fyrir allla þá sem taka þátt.

Vonumst til að sjá sem flesta.

Öllum fyrirspurnum verður svarað í gegnum motanefnd@sprettarar.is

Vetrarleikanefnd Spretts