Skránig á polla og barnanámskeið 2017

Nú fer að hefjast barna- og pollanámskeið í Spretti fyrir veturinn 2017. Skráningu lýkur þann 27. janúar. Námskeiðið hefst þann 29. janúar og er kennt á sunnudögum í Samskipahöllinni, hólfi 3 (vestast). Kennd verða fimm skipti en þó vekjum við athygli á því að möguleiki sé á tilfærslu vegna viðburða í höllinni, en það verður auglýst með góðum fyrirvara og reynt verður að halda sama tíma eftir bestu getu.

Kennsla fer fram milli 12 – 14 á sunnudögum, í tveimur hópum, c.a. 50 mín hver og kennarinn er Sara Rut Heimisdóttir sem er útskrifaður reiðkennari frá Hólum. Námskeiðið er ætlað þeim sem eru byrjendur eða lítið vanir.

Verð er 9.750 krónur á einstakling

Skráning er hafin á www.sportfengur.com

Séu spurningar bendum við á að senda okkur tölvupóst á fr***********@sp********.is eða hringja í Matthías Kjartansson s. 866-1623

Scroll to Top