Skemmtilegasta mót ársins mun fara fram 31 jan nk – Grímu og glasafimi. Fjörið hefst kl 18:00 í Samskipahöllinni!
Við hvetjum unga sem og eldri Sprettara til þess að spreyta sig á sínum gæðing. Það verða riðnir 3 hringir með glas í hendi og sá sem sullar minnst úr sínu glasi vinnur sinn flokk.
Það er valfrjálst að mæta í búning en sérstök verðlaun verða hins vegar veitt fyrir flottasta búninginn svo nú er um að gera að rífa upp saumavélina og skella í flott dress.
Þetta mót er einungis fyrir Sprettara svo nú viljum við sjá Sprettara skora á sína vini í félaginu til þess að taka þátt. Vinsamleg ábending – ölvun ógildir þátttöku.
4 flokkar í boði:
Pollar/börn (teymd eða riða sjálf)undir 10 ára aldri
Börn og unglingar 10-17 ára
Kvennaflokkur 18 ára og eldri
Karla flokkur 18 ára og eldri
Skráning mun fara fram á tölvupósti, [email protected], og greitt verður með millifærslu. Skráningu lýkur kl.23:59 fimmtudaginn 30.janúar.
Verð:
1500kr fyrir fullorðna (18 ára og eldri)
1000kr fyrir börn og unglinga (10-17 ára)
Frítt fyrir polla
Hlökkum til að sjá ykkur!