Nú leitum við að áhugasömum félagsmönnum til að taka þátt í nefndarstarfi og sérstaklega í nefndir Blue Lagoon og Áhugamannadeildar Spretts sem hafa verið mjög vinsælar mótaraðir hjá félaginu síðustu ár. Til að geta haldið úti öflugri Blue Lagoon mótaröð og Áhugamannadeild sem stendur undir væntingum þátttakenda og áhorfenda þurfum við kraftmikið og samstillt fólk sem er tilbúið að leggja sitt af mörkum. Auk starfa í fyrrnefndum nefndum eru fleiri spennandi og skemmtilegar nefndir og verkefni sem alltaf vantar gott fólk í.
Nefndarstarf er einstakt tækifæri til að:
- kynnast nýju fólki og efla tengslanetið innan hestamennskunnar
- miðla eigin reynslu og hugmyndum
- læra e-ð nýtt
- leggja af mörkum til viðburða og verkefna sem skipta miklu máli fyrir félagsmenn og félagið
- taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu félagsins
Starfsemi hestamannafélagsins Spretts byggir að miklu leiti á öflugum hópi sjálfboðaliða sem leggja félaginu lið með tíma sínum, hugmyndum, reynslu og framkvæmdagleði. Án þeirra væri ekki hægt að halda úti þeirri fjölbreyttu og metnaðarfullu starfsemi sem einkennir félagið.
Saman gerum við gott félag enn betra.
Áhugasamir eru hvattir til að senda póst á berglind(hja)sprettur.is til að melda sig eða fá nánari upplýsingar.
