Nýtt námskeið fyrir íþróttafólk á aldrinum 15-22 ára. Er stress eða kvíði að hindra þig í að ná árangri? Ert þú upptekin/n af því að gera ekki mistök? Gengur yfirleitt betur á æfingum en í keppni?
Sjálfstraust og árangur í íþróttum er námskeið í hugarþjálfun fyrir íþróttafólk á aldrinum 15-22 ára. Námskeiðið hentar iðkendum allra íþróttagreina. Ýmsar hindranir geta verið í vegi íþróttafólks, til dæmis stress, kvíði og erfiðleikar með einbeitingu. Markmið námskeiðsins er að hver þátttakandi átti sig á sínum hindrunum og læri aðferðir til að yfirstíga þær. Lögð verður áhersla á aðferðir úr hagnýtri íþrótta- og frammistöðusálfræði og klínískri sálfræði en námskeiðið hentar iðkendum allra íþróttagreina.
Hefst mánudaginn 24.október og lýkur 14.nóvember. Námskeiðið skiptist í fjóra hluta og verður kennt fjóra mánudaga í röð. Frá kl. 15:00-16:30. Námskeiðið fer fram í húsnæði Lífs og sálar á Höfðabakka 9 í Reykjavík. Verð: 29.000 kr.
Skráning fer í gegnum netfangið he***@li******.is eða í síma 511-5508. Eins má hafa samband til að afla nánari upplýsinga um námskeiðið.
Helgi Héðinsson og Reynar Kári Bjarnason sálfræðingar kenna námskeiðið.
Helgi hefur kennt ungu íþróttafólki hugarþjálfun undanfarin ár, bæði einstaklingslega og í hópum með þeirra félagsliði. Hann hefur meðal annars unnið með HK mfl.kvenna í handbolta, KR mfl.kvenna í fótbolta, Listskautadeild Skautafélags Reykjavíkur og Fimleikafélagi Akureyrar.
Reynar Kári er klínískur sálfræðingur. Hann hefur unnið mikið með ungu fólki, við það að ná markmiðum sínum og takast á við kvíða. Hann hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeið um sálfélagslega áhættuþætti.