Kæru félagar í Spretti.
Nú fer að styttast í mót vorsins og okkur í mótanefndinni vantar starfsfólk til að aðstoða okkur við mótin. Næsta mót fer fram 5-7 júní og er gæðingamót félagsins. Það vantar aðstoð í dómpalli, ritara fyrir dómara og annað tilfallandi. Vonandi eru einhverjir félagsmenn sem sjái sér fært að aðstoða okkur.
Vinsamlega sendið upplýsingar nafn og símanúmer á mo*******@sp********.is. Margar hendur vinna létt verk.
Mótanefnd Spretts