Vilt þú taka þátt í Sjálfbærninefnd Spretts?
Viltu taka þátt í því að gera Sprett að kolefnislausu/sjálfbæru hestamannafélagi?
- Verkefni A: Nýting hrossaskíts félagsins til landgræðslu og skógræktar. Í því felst:
- Að leysa vandamál félagsins varðandi förgun á skít sem kostnaðarsamt er fyrir umhverfi og samfélag að farga og hvergi má vera. Taka þarf saman punkta um:
- Hvert er núverandi ástand?
- Hvað er til ráða?
- Nýta skítinn þess í stað til góðra verka sem stuðlar að landgræðslu, skógrækt og minnkar kolefnisfótspor. Svara þarf spurningum um:
- Hvert er kolefnisfótspor núverandi skítalosunar Spretts?
- Hvernig nýtist skíturinn til uppgræðslu / skógræktar / kolefnisjöfnunar? Hvaða vísindi eru á bakvið það? Hvað þarf til þess að kolefnisjafna skítaframleiðsluna?
- Hver er ávinningur sveitarfélaganna? Hvað kostar þetta núna vs. framtíðarástand? Lægri kostnaður og/eða umhverfisvænni kostnaður?
- Samstarf við skógræktarfélög? Geta skógræktarfélögin nýtt skítinn eða eitthvað af honum við sína skógrækt? Minnkað notkun tilbúins áburðar t.d.?
- Þurfa félagsmenn að gera eitthvað til að skíturinn falli betur að umhverfiskröfum? T.d. nota eða nota ekki tiltekinn undirburð?
- Hvernig á að meðhöndla skítinn til að lágmarka umhverfisáhrif (metangasmyndun) og hámarka nýtingu til ræktunar.
- Koma á laggirnar eigin kolefnisjöfnunarverkefni við landgræðslu og skógrækt á landsvæðum sem félagið fengi til afnota. Í því felst t.d.:
- Vinna félagsmanna við landgræðslustörf, gróðursetningar, umhirðu svæða o.s.frv.
- Samstarf við umhverfisdeildir sveitarfélaganna, skógræktarfélögin, Landgræðsluna o.s.frv. eftir því sem við á.
- Verkefni sem kolefnisjafnar bæði skítalosun og aðra starfsemi Spretts.
- Verkefni B: Græn skrefi í átt að sjálfbærni. Í því felst t.d.:
- Verkefni A er hluti af verkefni B.
- Taka græn skref t.d. í samræmi við https://graenskref.is/
- Greina umhverfismengandi þætti starfsemi Spretts og reikna út heildar kolefnisfótspor starfseminnar.
- Hafa skýra sjálfbærnistefnu, stuðla að því að allir félagsmenn séu upplýstir um hana og fari eftir henni.
- Standa fyrir fræðslu til félagsmanna um umhverfistengd málefni sem varða málefni hestamannafélagsins, dýrahald o.s.frv.
- Setja fram skýr og mælanleg markmið um hvernig eigi að auka sjálfbærni, draga úr kolefnisfótspor t.d. með verkefni A en líka með öðrum aðgerðum (endurvinna plast, draga úr rafmagnsnotkun með ledlýsingu o.s.frv. o.s.frv.).
- Áhugavert í þessu er einnig að sjálfbærni snýst líka um félagslega þætti og samfélagsþátttöku t.d. er varða heilsu og vellíðan borgaranna.
- Áhugasamir sendi póst á [email protected]