Sirkusnámskeið

Haldið verður „sirkusnámskeið“ í Spretti með reiðkennaranum Ragnheiði Þorvaldsdóttur.

Skemmtilegt námskeið til að nálgast hestamennskuna á annan hátt. Farið verður m.a. yfir 7 games eftir Pat Parelli, smelluþjálfun, brelluþjálfun og umhverfisþjálfun.

Unnið er eingöngu með hestinn í hendi. Útbúnaður sem þarf er snúrumúll, langur mjúkur kaðaltaumur og smella sem fæst í helstu gæludýrabúðum og Líflandi. Aldurstakmark er 12 ára.

Lágmarksþátttaka á námskeiðið er 8 nemendur.

Kenndir verða 6 verklegir tímar. Kennt verður í Húsasmiðjuhöll á eftirtöldum dögum;
– laugardaginn 12.febrúar milli kl.13-16
– miðvikudaginn 16.feb milli kl.16-18
– miðvikudaginn 23.feb milli kl.16-18
– miðvikudaginn 2.mars milli kl.16-18
– miðvikudaginn 9.mars milli kl.16-18
– miðvikudaginn 16.mars milli kl.16-18

Verð fyrir námskeiðið er 17.500kr fyrir yngri flokka og 23.500 fyrir fullorðna.

 

Skráning fer fram á sportabler – sjá hlekki á skráninguna hér

Fullorðnir:
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NzgwNA==

 

Yngri flokkar:
https://www.sportabler.com/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NzgwMw==

Sirkusnámskeið Ragnheiður Þorvaldsd
Scroll to Top