Síðasta mót Blue Lagoon – gæðingakeppni innanhúss

Síðasta mótið í Blue Lagoon mótaröð Spretts verður haldið sunnudaginn 12.apríl en þá verður keppt í gæðingakeppni innanhúss

Eftirfarandi flokkar eru í boði í gæðingakeppni innanhús, riðið verður heilt prógram í forkeppni og einn inn á í einu:
Barnaflokkur (10-13 ára) 20 keppendur
Barnaflokkur (10-13 ára), gæðingaflokkur 2 (minna vanir) 20 keppendur
Unglingaflokkur (14-17 ára 20 keppendur
Unglingaflokkur (14-17 ára, gæðingaflokkur 2 (minna vanir) 20 keppendur
Ungmennaflokkur (18-21árs) 20 keppendur

Keppendur sýna:
Barnaflokkur (Fet, tölt eða brokk, stökk)
Unglingaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og yfirferðargangur-annaðhvort tölt eða brokk)
Ungmennaflokkur (fet, hægt tölt, brokk, stökk og greitt tölt)

Nánari upplýsingar um reglur í gæðingakeppni á www.gdlh.is

6 efstu knapar fara í úrslit en það verða ekki riðin B-úrslit. Knapar í barna-, unglinga- og ungmennaflokki safna stigum í gegnum mótaröðina og verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu knapana í hverjum flokki á síðasta mótinu.

Einungis er leyfilegt að skrá 1 hest á hvern knapa á þessu móti
Ekki er leyfilegt að keppa upp fyrir sig um flokk á þessum mótum og keppandinn verður afskráður ef hann er skráður í rangan flokk
Við minnum einnig á tölvupóstinn okkar bl********@******ur.is og reynum við eftir bestu getu að svara sem allra fyrst.
Nefndin vinnur öll störf í sjálfboðaliðastarfi

Blue Lagoon nefndin áskilur sér rétt á að sameina flokka ef ekki næst nægur fjöldi í einhverja flokka.

Gaman að segja frá því að BLUE LAGOON mótaröðin verður í beinni útsendingu á EIÐFAXI TV, www.eidfaxitv.is.

Opnir tímar til að æfa sig verða á mánudaginn 6.apríl, í Samskipahöllinni kl.10:00-12:00

Skráningin fer fram í gegnum Sportfeng, www.sportfengur.com og hefst föstudaginn 3. apríl kl.12:00 til miðnættis miðvikudaginn 8. apríl. Skráningargjaldið er 4500.kr.

Scroll to Top