Skip to content

Sértilboð á fatnaði fyrir hestamannafélagið Sprett

Í samstarfi við hestavöru- og reiðfataframleiðandann Hrímni, bjóðum við upp á að panta sérframleiddan fatnað merktan Spretti.

Laugardaginn 27 janúar kl. 14-17 á annari hæð í reiðhöllinni og sunnudaginn 28 janúar kl. 10-13 í veislusal Spretts, bjóðum við upp á mátunardag en þá koma fulltrúar Hrímnis með allar stærðir af fatnaðnum svo hægt sé að velja rétta stærð.

Við bjóðum félagsmönnum að greiða aðeins helming við pöntun og restina við afhendingu í maí.

Hvetjum við alla þá sem stefna á að keppa fyrir hönd Spretts á Landsmóti, félagsmenn og aðstandendur að nýta tækifærið til að fá sér vandaðan fatnað á sérkjörum.

Við mætum svo öll á Landsmót í sumar vel merkt okkar félagi og styðjum okkar fólk.