Samskipadeildinin, Áhugamannadeild Spretts, 2026 lokið

Keppni í gæðingaskeiði í boði Útfararstofu Íslands fór fram í frábæru veðri og góðum velli í Sörla miðað við árstíma og miklar leysingar dagana áður laugardaginn síðastliðinn.

Þar voru margir góðir sprettir farnir en að lokum var það Rósa Valdimarsdóttir og Lás frá Jarðbrú 1 sem stóðu uppi sem sigurvegarar með einkunnina 6,50

Rósa Valdimarsdóttir og Lás frá Jarðbrú 1 – Mynd Gunnhildur Ýrr

Næstar voru Guðlaug Jóna Matthíasdóttir og Hrauna frá Eylandi og þriðju voru Theódóra Þorvaldsdóttir á heimaræktuðu hryssunni Urlu frá Pulu.

Verðlaunaafhending fyrir gæðingaskeið – Mynd Gunnhildur Ýrr

Liðaplattin fór á kunnuglegar slóðir, til liðs Fossvéla. Fyrir þeirra hönd tóku Theódóra Þorvaldsdóttir, Erla Guðný Gylfadóttir og Þórunn Kristjánsdóttir þátt.

Lið Fossvéla nældi sér í liðaplattann fyrir gæðingaskeiðið – Mynd Gunnhildur Ýrr

Um kvöldið var svo skipt um gír og mættu knapar, sjálfboðaliðar og aðstandendur til lokahófs í Arnarfelli, veislusal Samskipahallarinnar í Sprett.

Þar voru veitt verðlaun fyrir veturinn.

Þjálfari ársins var Sigurður Rúnar Pálsson, þjálfari Réttverks. Hann þótti sýna fagmennsku þegar kom að því að aðstoða knapa sína og setja þau í gírinn á mótsdegi með jákvæðu og rólegu yfirbragði. Margir góðir þjálfarar voru í deildinni í vetur sem er afar mikilvægt því góðir þjálfarar aðstoða knapa að ná lengra í sinni hestamennsku. Hann fékk í sínar hendur farandgrip frá Sign, verðlaunagrip frá Sign og gjafapoka frá Josera.

Sigurður Rúnar Pálsson þjálfari ársins auk Sigríðar Helgu og Selmu Rutar úr stjórn Áhugamannadeildarinnar. Mynd Gunnhildur Ýrr

 

Faglegasta sýningin, útnefnd af dómurum deildarinnar, var sýning Þórunnar Kristjánsdóttur og Týs frá Hólum í fimmgang.  Hún tók með sér farandgrip frá Sign, verðlaunagrip frá Sign auk gjafapoka frá Líflandi

 

 

Þórunn Kristjánsdóttir auk Birtu, Sigríðar Helgu og Selmu Rutar frá stjórn deildarinnar. Mynd Gunnhildur Ýrr

 

Stigahæsti knapinn þetta árið var Erla Guðný Gylfadóttir með  29 stig. Hún átti jafna og góða frammistöðu yfir veturinn, sigraði meðal annars fjórganginn og töltið á glæsihryssunni Flugu frá Garðabæ og var í A-úrslitum í slaktaumatölti á reynslumikla gæðingnum Roða frá Margrétarhofi. Fast á hæla hennar var Sarah Maagaard Nielsen með 27,5 stig og því næstur Darri Gunnarsson með 20 stig. Erla fékk auk farandgrips og verðlaunagrips frá Sign glæsilegan Samshield hjálm frá hestavöruversluninni Brokk.

Erla Guðný Gylfadóttir, sigurvegari Samskipadeildarinnar árið 2026

 

Spennan var ekki síður minni í liðakeppninni en þar var það lið Fossvéla sem bar sigur úr býtum með 500 stig, vígalegt það. Í öðru sæti var lið Réttverks með 435,5 stig og einu stigi neðar lið Frosta með 434,5 stig. Hver liðsmaður vinningsliðsins fékk ábreiðu frá Fákalandi. Liðsmenn Fossvéla þetta árið voru Þórdís Sigurðardóttir, Erla Guðný Gylfadóttir, Gunnar Már Þórðarson, Þórunn Kristjánsdóttir og Theódóra Þorvaldsdóttir.

Sigurliðið, lið Fossvéla

Hér má sjá heildarniðurstöðu í einstaklings- og liðakeppninni 2026

 

Stjórn Áhugamannadeildarinn þakkar knöpum, liðseigendum, sjálfboðaliðum og starfsfólki Spretts fyrir gott samstarf á liðnum vetri.

Við sjáumst aftur að ári !

Scroll to Top