Samskipadeild – Áhugamannadeild Spretts – Liðakynning partur 1

Nú þegar 9 dagar eru í fyrsta mót tímabilsins er ekki seinna vænna en að byrja að kynna liðin sem taka þátt.

Keppni í Eiðfaxa TV fjórganginum fer fram í Samskipahöllinni 19. febrúar kl. 18:30

Það verður einnig bein útstending frá viðburðinum á Eiðfaxa TV

Samskipadeildin – Áhugamannadeild Spretts – Eiðfaxi TV Fjórgangur V2 | Facebook

Vörðufell
Fyrsta liðið sem við kynnum til leiks er lið Vörðufells.

Liðið er óbreytt frá síðasta tímabili.

Guðrún Randalín Lárusdóttir, Aðstoðarskólameistari, 48 ára, Krabbi, Hestamannafélaginu Sörla

Harpa Kristjánsdóttur , Gull-og silfursmiður og kennari, 65 ára, Tvíburi, Hestamannafélaginu Spretti

Kolbrún Kristín Birgisdóttir, Líffræðingur, 53 ára, Hrútur, Hestamannafélaginu Fák

Esther Ósk Ármannsdóttir, Ljósmóðir og Hjúkrunarfræðingur, 54 ára, Meyja, Hestamannafélaginu Spretti

Anna Vilbergsdóttir, Gjörgæsluhjúkrunarfræðingur, 67 ára, Meyja, Hestamannafélaginu Spretti

Vestlendingarnir
Liðið keppti undir merkjum Bifreiðverkstæði Bödda og Borgarverk á síðasta tímabili. Veronica Osterhammer kemur ný inn í liðið.

Ámundi Sigurðsson, Rekstrarstjóri, 68 ára, Ljón, Hestamannafélaginu Borgfirðingi

Arna Hrönn Ámundadóttir, Flugumferðarstjóri, 24 ára, Vog, Hestamannafélaginu Borgfirðingi

Eyþór Gíslasonm Iðnaðarmaður, 50 ára, Hrútur, Hestamannafélaginu Borgfirðingi

Veronica Osterhammer, Ferðaþjónustubóndi, 52 ára, Fiskur, Hestamannafélaginu Snæfellingi

Gunnar Tryggvason, Ferðaþjónustubóndi, 63 ára, Sporðdreki, Hestamannafélaginu Snæfellingi

Fossvélar
Sigurvegarar síðasta árs mæta til leiks með nýtt nafn, Fossvélar. Liðið er óbreytt og ekki ólíklegt að stefnan sé sett á toppinn aftur í ár.

Þórdís Sigurðardóttir, 49 ára, Lífeindafræðingur, Sporðdreki

Erla Guðný Gylfadóttir, 50 ára, Kennari, Vog

Gunnar Már Þórðarson, 68 ára, Vélvirki, Vatnsberi

Þórunn Kristjánsdóttir, 42 ára,  Kennari, Bogmaður

Theodóra Þorvaldsdóttir, 44 ára, Hrossabóndi, Vatnsberi

Þjálfari liðsins er Viðar Ingólfsson

Trausti
Lið Trausta er óbreytt frá síðasta ári.

Darri Gunnarsson, 61 árs, 172cm, Ljón, Hestamannafélaginu Sörla

Aníta Rós Róbertsdóttir, 27 ára, 166cm, Fiskur, Hestamannafélaginu Sörla

Bjarni Sigurðsson, 55 ára, 183 cm, Fiskur, Hestamannafélaginu Sörla

Ragnar Stefánsson, 58 ára, 171 cm, Bogmaður, Hestamannafélaginu Spretti

Þorgerður Gyða Ásmundsdóttir, 37 ára, 167 cm, Tvíburi, Hestamannafélaginu Sörla

Þjálfari liðsins er Atli Guðmundsson

Hótel Rangá
Það má segja að liðið hafi mætt með látum nýtt inn í deildina í fyrra og voru knapar liðsins oftar en ekki í toppbaráttunni. Tveir nýir liðsmenn komu inn fyrir þetta tímabil þær Elín Hrönn og Klara Sif.

Elín Hrönn Sigurðardóttir, 39 ára, Fiskur, Hestamannafélaginu Geysi

Klara Sif Ásmundsdóttir, 34 ára, Meyja, Hestamannafélaginu Geysi

Sarah Maagaard Nielsen, 44 ára, Naut, Hestamannafélaginu Geysi,

Steingrímur Jónsson, 55, ára Meyja, Hestamannafélaginu Geysi

Eyrún Jónasdóttir, 57 ára, Ljón,  Hestamannafélaginu Geysi

Þjálfarar eru Hanna Rún og Hjörvar

 

Scroll to Top