Rýming kerrustæðis og umferð í tengslum við tónleika Laufeyjar

Kæru félagsmenn

Næstkomandi helgi verða stórtónleikar Laufeyjar haldnir í Kórnum, laugardaginn 14. mars og sunnudaginn 15. mars.
Af því tilefni hefur Kópavogsbær farið fram á að félagsmenn fjarlægi kerrur af kerrustæði yfir helgina.

Þar sem um stóran viðburð er að ræða má eiga vona á því að umferðatafir verði við hesthúsahverfið á meðan á tónleikunum stendur. Reynt verður að halda umferð í lágmarki og munu tónleikahaldarar reyna að beina sem flestum í strætó.

Frekari upplýsingar um lokanir á svæðinu munu berast okkur í vikunni.

Scroll to Top