Reiðskólinn Hestalíf í Spretti

Nú er fram undan skemmtilegur og líflegur tími á svæðinu okkar, því á þriðjudaginn hefst starfsemi Reiðskólans Hestalíf í Spretti. Þar munu ungir og áhugasamir knapar stíga sín fyrstu skref í hestamennskunni og taka þátt í námskeiðum í júní og júlí, bæði fyrir og eftir hádegi. Við viljum biðla til allra félagsmanna að sýna sérstaka aðgát og tillitssemi á reiðgötum og í kringum svæðið þar sem börnin eru að æfa sig. Þessi hópur er reynslulítill og mikilvægt er að skapa öruggt og jákvætt umhverfi fyrir þau til að læra og njóta. Reiðskólinn hefur einnig bókaða tíma í Hattarvallahöllinni bæði fyrir og eftir hádegi. Þeir tímar eru sérstaklega fráteknir fyrir starfsemi skólans, en ef veður er gott þá verður höllin mögulega ekki nýtt og þá er velkomið að fara inn. Við hlökkum til líflegs sumars og minnum á að góð samvinna og virðing á svæðinu skilar sér í jákvæðri upplifun fyrir alla.

Scroll to Top