Reiðhallir Spretts

Athugið að hægt er að velja mismunandi snið á dagatalið eftir því hvað hentar. Hægt er að velja viku, mánuð eða áætlun. Þetta er gert efst í hægra horninu á dagatalinu. Á símum gæti verið best að velja 'Áætlun´til að sjá sem best hvað er í gangi.

Reglur í Reiðhöllinni

Þeir sem nota reiðsalinn í Reiðhöllinni sýni starfsfólki og öðrum reiðmönnum tillitsemi og virðingu.
Félagsmenn sjá um að hreinsa gólf eftir sig, setja tað í hjólbörur og annað rusl í ruslafötur. Sá sem síðastur er út úr höllinni skal draga frá tjöldin svo höllin sé ekki hólfuð niður á næturnar.
Virða skal þá tíma sem skráðir eru, sjá dagatal hér til hliðar.

Notkun er einungis fyrir þá sem hafa greitt félagsgjöld og greitt er sérstaklega fyrir notkun á reiðhöll.

1. Hjálmaskylda er í reiðhöllinni.
2. Lausaganga hunda er stranglega bönnuð.
3. Knapar þrífi upp eftir hesta sína og sjálfa sig.
4. Áhorfendur gangi vel um og noti ruslafötur.
5. Reykingar eru bannaðar.
6. Einungis skuldlausir félagar hafa aðgang. Börn yngri en 16 ára noti reiðhöll einungis í fylgd með forráðamanni.
7. Meðferð áfengis og annara vímuefna er bönnuð.
8. Drukknu fólki ber að vísa úr húsinu umsvifalaust.

Ragnar Stefánsson er umsjónaraðili svæðis og fasteigna, almennt viðhald, umsjón með vélum, afhendingu reiðhallarlykla, móttöku plasts ásamt ýmsu fleiru.

Hægt er að ná í Ragnar í síma 620-4500 og á netfangið [email protected]

Scroll to Top