Ragnar látið af störfum

Nú hefur Ragnar Stefánsson látið af störfum hjá Spretti þar sem hann hefur kosið að fara aftur á sjóinn. Ragnar var skipstjórnarmaður áður en hann tók til starfa hjá Spretti í febrúar. Stjórn og starfsfólk Spretts þakkar Ragnari kærlega fyrir vel unnin störf, fyrir ánægjuleg kynni og samvinnu í vetur.

Ljóst er að starfið sem Ragnar sinnti hjá Spretti er komið til að vera og stjórn er farin að kíkja í kringum sig eftir arftaka hans. Þeir sem vilja heyra í okkur varðandi starfið geta sent tölvupóst á stjorn(att)sprettur.is eða komið að tali við stjórn.

Gert er ráð fyrir að ráða í starfið fyrir sumarfrí.

Scroll to Top