Skip to content

Ræktunarhross frá Sprettsfélögum á Landsmóti

Stórglæsilegu landsmóti á vegum Spretts og Fáks er nú lokið. Gaman er að skoða árangurinn á kynbótabrautinni þar sem fjölmörg glæsihross úr ræktun félagasmanna í Spretti komu fram. Einnig áttu Sprettarar hross í ræktunarbúsýningunum. Hér að neðan ætlum við að reyna að gera skil á þeim hrossum sem komust í verðlaunafhendingu meðal  6 efstu hrossa. Til hamingju félagar með þennan frábæra árangur.

 Afkvæmahestar:

Ljósvaki  f. Valstrýtu var í 7. sæti stóðhesta með 1. verðlaun fyrir afkvæmi.

4v. hestar:

1.sæti   Dalvar f. Efsta-Seli  IS2020186644  Ae. 8,42. Ræktendur Hilmar Sæm. og Daníel Jónsson

4.sæti  Fleygur f. Geitaskarði  IS2020156818  Ae. 8,32  Ræktandi Sigurður Örn Ágústsson

5v. hestar:

4.sæti  Bylur f. Geitaskarði IS2019156813  AE. 8,46  Ræktandi Sigurður Örn Ág. Brynjólfur Stef.

5v. hryssur:

2.sæti  Nóta f. Sumarliðabæ IS2019281514 AE. 8,67  Ræktandi  Birgir M. Ragn/Silja H. Jílíusd.

5.sæti  Líf f. Sumarliðabæ IS2019281512  AE. 8,52  Ræktand i Birgir M. Ragn/ Silja H. Júlíusd.

6. hryssur:

6.sæti  Valbjörk f. Valstrýtu  IS2018280719  AE. 8,46  Ræktandi Guðjón Árnason

7v. og eldri hestar:

6.sæti  Hjartasteinn f. Hrístjörn IS2017280693  AE. 8,53 Ræktandi Jóhann Axel Geirss./ Ásgerður Giss.

Þetta er glæsilegur árangur hjá Sprettsfélögum sem flestir eru áhugamenn í hrossarækt.

f.h. Hrossaræktarnefndar Spretts  Hannes Hjartarson